,,Mér finnst að allt sem dómarinn dæmir eigi að standa,“ sagði Milos Milojevic þjálfari Breiðabliks efitr 1-1 jafntefli gegn KR í kvöld.
KR jafnaði með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma en Guðmundur Andri Tryggvason lét sig falla í teignum.
,,Ég þarf að sjá þetta aftur, mér finnst þetta soft og ekki nein snerting.“
,,Ég sé kannski ekki vel, dómarinn stendur þannig að hann á ekki að sjá þetta nema að hann sé með linsur sem eru að zooma fyrir hann 20 sinnum. Væntanlega er hann ekki með það.“
Viðtalið er í heild hér að ofan og neðan.