Guðjón Baldvinsson, framherji Stjörnunnar, var virkilega ánægður í kvöld eftir öruggan 5-0 sigur liðsins í Pepsi-deildinni á ÍBV.
,,Við vorum ákveðnir í því að ná í okkar fyrsta sigur í fyrsta heimaleiknum og á fyrstu sekúndunum sýndum við það að við ætluðum að skora mörk,“ sagði Guðjón.
,,Þeir björguðu á línu eftir mínútu eða eitthvað og svona var þetta bara. Við gáfum aldrei eftir.“
,,Það er alls staðar óskað eftir því að framherjar skori og eftir vonbrigðaár undanfarið hjá mér, ekki mikið um mörk þá var ég ákveðinn strax í byrjun að seta nokkur mörk.“