„Við erum búnir að bíða lengi eftir þessu og við munum fagna vel í rútunni á leiðinni heim á eftir,“ sagði Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA eftir 3-1 sigur liðsins gegn Breiðablik í dag..
Það voru þeir Darko Bulatovic, Elfar Árni Aðalsteinsson og Ásgeir Sigurgeirsson sem skoruðu mörk KA í leknum en Andri Rafn Yeoman minnkaði muninn fyrir Blika í stöðunni 3-0.
„Við komum hingað til þess að sækja sigur og það sást frá fyrstu sekúndu að við ætluðum að vinna þennan leik. Þetta voru erfiðar aðstæður í dag en við lögðum allt í þetta og uppskárum eftir því.“
„Við ætlum að sækja þrjú stig í öllum leikjum sem við spilum, það er ekkert flóknara en það. Menn voru gríðarlega spenntir að fá að spila þennan leik og það sást á vellinum að það er gríðarlega samstaða hjá öllu félaginu.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan og neðan.