Steven Lennon, framherji FH, var frábær í kvöld er liðið mætti ÍA í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.
Lennon skoraði þrjú mörk fyrir FH en hann sjálfur segist vera í betra standi en áður.
,,Þetta er góð byrjun. Það mikilvægasta eru stigin þrjú frekar en mörkin þrjú,“ sagði Lennon.
,,Fyrsta markið var smá heppni sem hefur ekki verið með mér undanfarin ár svo vonandi heldur það áfram.“
,,Annað markið var mögulega mitt fallegasta á Íslandi en mér líkaði við markið gegn Leikni fyrir tveimur árum.“
,,Ég er sex kílóum léttari en í fyrra, mér líður betur og hef misst um 5 prósent af fituprósentu.“