433

Tveir miðjumenn Arsenal orðaðir við önnur lið - Gæti Ödegaard endað hjá Bayern?

Mynd
Getty Images

Tvær stórstjörnur Arsenal eru orðaðar frá félaginu samkvæmt nýjustu félagaskiptasögusögnum sem fjallað er um í enskum fjölmiðlum.

Bayern München er sagt fylgjast grannt með Martin Ödegaard, fyrirliða Arsenal, en óvissa ríkir um framtíð Norðmannsins hjá Lundúnafélaginu.

Ödegaard er 27 ára og hefur verið lykilmaður Arsenal undanfarin ár. Óvissa um næsta samning hans hefur vakið áhuga þýska stórliðsins.

Á sama tíma er spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi sagður tilbúinn að íhuga brottför frá Arsenal í janúarglugganum.

Zubimendi, sem er einnig 27 ára, gæti því verið á förum þegar félagaskiptaglugginn opnar á ný.

Ekki liggur fyrir hvaða félög hafa áhuga á Spánverjanum.

Það yrði mikið áfall fyrir Arsenal að missa báða miðjumennina, en enn sem komið er eru þetta aðeins sögusagnir.