433

Parker aftur til West Ham

Mynd
Scott Parker

West Ham hefur ráðið Scott Parker sem nýjan stjóra og hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning.

Parker tekur við af Nuno Espirito Santo sem var rekinn í gær eftir slæmt gengi liðsins í ensku B-deildinni. West Ham féll úr úrvalsdeildinni síðasta vor og situr nú í áttunda sæti, sex stigum á eftir toppliði Middlesbrough.

Parker, sem er 46 ára gamall, þekkir vel til hjá West Ham eftir að hafa leikið með félaginu á árunum 2007 til 2011. Hann var meðal annars valinn leikmaður ársins hjá félaginu þrjú tímabil í röð.

„Það fylgir því mikið stolt fyrir mig að snúa aftur til félags sem hefur svo mikla þýðingu fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég er afar spenntur fyrir þessu tækifæri,“ segir Parker.

Parker hefur áður komið Fulham, Bournemouth og Burnley upp úr B-deildinni en hefur hins vegar ekki tekist að halda þeim liðum í úrvalsdeildinni. Hann yfirgaf Burnley síðasta vor eftir fall.

Fyrsti leikur West Ham undir hans stjórn verður gegn Cardiff City í kvöld.