Dirk Kuyt mun ekki stýra Fenerbahce gegn sínu gamla félagi Liverpool í Meistaradeildinni í kvöld eins og til stóð.
Tyrkneska félagið hefur ráðið Emre Belozoglu sem nýjan knattspyrnustjóra en hann tekur við af Kuyt sem hafði stýrt liðinu tímabundið eftir brotthvarf Ismail Kartal.
Kuyt lék með Liverpool á árunum 2006 til 2012 áður en hann gekk til liðs við Fenerbahce. Hann hafði hlakkað til þess að mæta sínum gömlu félögum.
Belozoglu, sem er 46 ára, kemur frá Kasimpasa en hann hefur áður stýrt Fenerbahce tímabundið, árið 2021. Hann fær það verkefni að snúa við gengi liðsins sem situr í sjötta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar.