Miðvörðurinn Arnór Gauti Úlfarsson er genginn í raðir FH á nýjan leik eftir dvöl hjá ÍR og Grindavík í Lengjudeildinni.
Tilkynning FH
Arnór Gauti hefur gert þriggja ára samning við Fimleikafélagið. Arnór Gauti er uppalinn í FH en hefur undanfarin ár spilað með ÍR og Grindavík í Lengjudeildinni. Hann er 23 ára gamall miðvörður sem getur einnig leyst bakvarðastöðurnar.
“Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í Arnór. Hann er fljótur og aggresívur miðvörður, hefur staðið sig vel í Lengjudeildinni undanfarin ár og tilbúinn að taka skrefið í Bestu deildina. Síðan er það alltaf ánægjulegt að fá FH-inga heim, Arnór með stórt FH hjarta og mun hjálpa okkur mikið í þeirri baráttu sem framundan er hjá okkur.” Sagði Davíð Þór við FH media