Liverpool er opið fyrir því að endursemja við Virgil van Dijk, fyrirliða liðsins.
Hollendingurinn, sem er orðinn 35 ára gamall, verður samningslaus næsta sumar og þykir hann vera að fara niður hæðina á knattspyrnuferlinum.
Van Dijk spilar þó enn alla leiki og ber fyrirliðabandið. Félagið áttar sig á að brátt þurfi að finna arftaka hans en er þó til í að halda honum, þó svo að það verði ekki í eins stóru hlutverki.
Sömuleiðis er Van Dijk til í að vera áfram en laun hans gætu orðið ásteytingarsteinn í viðræðum um nýjan samning. Miðvörðurinn þénar afar vel á Anfield og þyrfti að taka á sig launalækkun.