433

United skoðar fjóra leikmenn Dortmund - Njósnari skoðaði þá síðustu helgi

Mynd
Jobe Bellingham

Manchester United hefur beint sjónum sínum að fjórum leikmönnum Borussia Dortmund í Þýskalandi með möguleg félagaskipti í huga.

Samkvæmt Teamtalk sendi enska stórliðið útsendara til að fylgjast með leikmönnunum um síðustu helgi.

Um er að ræða Serhou Guirassy, Jobe Bellingham, Felix Nmecha og Daniel Svensson.

Guirassy er þrítugur framherji frá Gíneu en Bellingham, yngri bróðir Jude Bellingham hjá Real Madrid, er 21 árs enskur miðjumaður.

Þá er Nmecha 26 ára þýskur miðjumaður og Svensson 24 ára sænskur varnarmaður.

Manchester United hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og félagið er sagt vilja styrkja leikmannahópinn á næstu misserum.