Cristiano Ronaldo yngri, sonur portúgölsku stórstjörnunnar Cristiano Ronaldo, hefur verið valinn í U-17 ára landslið Portúgal í fyrsta sinn.
Hinn 16 ára gamli Ronaldo er á mála hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu, þar sem faðir hans leikur einnig. Hann hefur áður spilað með U-15 og U-16 ára landsliðum Portúgala og skorað fimm mörk í 13 leikjum.
Ronaldo yngri vakti athygli á dögunum þegar hann æfði með knattspyrnuakademíu Spánar en hann getur valið á milli þess að spila fyrir fimm þjóðir. Auk Portúgals gæti hann valið Spán, England, Bandaríkin eða Grænhöfðaeyjar.
Hann hefur þó haldið tryggð við Portúgal hingað til og er nú í hópnum fyrir undankeppni EM U-17 ára landsliða. Portúgal mætir Andorra, Búlgaríu og Serbíu síðar í þessum mánuði.