433

Segja ekkert til í fréttum af Bruno Fernandes

Mynd
Getty Images

Al-Hilal í Sádi-Arabíu ætlar ekki að gera aðra tilraun til að fá Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, þrátt fyrir óvissu um framtíð hans á Old Trafford.

Talksport greinir frá þessu en félagið hefur áður reynt að fá Portúgalann til sín. Fernandes hafnaði þá gylliboði þess.

Undanfarið hefur verið talað um að Al-Hilal gæti gert nýtt tilboð í Fernandes í janúar en svo verður ekki, samkvæmt frétt Talksport. Ástæðan er sú að félagið hefur þegar fyllt öll pláss fyrir erlenda leikmenn.

Fernandes er 32 ára gamall og verður samningslaus næsta sumar. Viðræður um nýjan samning hafa ekki skilað árangri en United hefur möguleika á að framlengja samning hans um eitt ár.