Harry Kane, framherji Bayern München og fyrirliði enska landsliðsins, er afar nálægt því að skrifa undir nýjan samning við þýska stórliðið.
Kane greindi frá þessu á blaðamannafundi fyrir leik Bayern gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu.
„Ég myndi segja að þetta væri frekar spurning um daga en vikur. Við ræddum saman um helgina og aftur í dag. Við erum ótrúlega nálægt samkomulagi,“ sagði Kane.
Englendingurinn segir að búið sé að ganga frá stærstu atriðum samningsins en nokkur smáatriði séu enn ófrágengin.
„Stærstu málin hafa verið leyst og allir eru ánægðir með niðurstöðuna. Það eru alltaf einhver smáatriði sem lögfræðingarnir þurfa að klára.“
Kane hefur verið lykilmaður hjá Bayern frá því hann gekk til liðs við félagið frá Tottenham.
Framherjinn er greinilega ánægður í München og stefnir á að halda áfram hjá félaginu.
„Viðræðurnar hafa gengið vel og vonandi getum við gengið frá þessu á næstu dögum,“ sagði Kane.