433

Nuno rekinn frá West Ham

Mynd
Nuno Espirito Santo.

West Ham hefur sagt Nuno Espirito Santo upp störfum eftir misjafna byrjun liðsins í ensku Championship-deildinni.

West Ham var talið langlíklegast til að vinna deildina fyrir tímabilið en situr nú í áttunda sæti eftir 3-1 tap gegn West Bromwich Albion um helgina.

Nuno tók við liðinu í september 2025 en tókst ekki að koma í veg fyrir fall þess úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Mark Noble, fyrrum fyrirliði West Ham, mun stýra liðinu tímabundið ásamt Steve Potts og Gerard Prenderville.

Fyrsti leikur þeirra verður gegn Cardiff City annað kvöld.

West Ham hefur staðfest að leit að nýjum knattspyrnustjóra sé þegar hafin.