Manchester United og Manchester City hafa bæði áhuga á Alex Freeman, hægri bakverði Villarreal, sem hefur vakið athygli með frammistöðu sinni á Spáni.
Football Insider fjallar um málið en þessi 22 ára gamli Bandaríkjamaður gekk til liðs við Villarreal í janúar á þessu ári og hefur síðan fest sig í sessi hjá liðinu. Hann lék einnig alla fimm leiki Bandaríkjanna á HM síðasta sumar.
City sér Freeman sem mögulega framtíðarlausn í hægri bakvarðarstöðuna en United hefur þá sent útsendara til að fylgjast með honum.
Freeman er hraður og sterkur, en hann getur einnig spilað í miðverði. Villarreal vill ekki sleppa honum ódýrt.