433

Leitaði svara hjá Ronaldo við nýjustu pillum Ten Hag - Svarið frá honum vekur athygli

Mynd
Getty Images

Cristiano Ronaldo hefur lítið álit á Erik ten Hag, fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United, ef marka má ummæli sjónvarpsmannsins Piers Morgan.

Ten Hag lét nýlega hafa eftir sér að Ronaldo hefði verið kominn langt fram yfir sitt besta þegar hann sneri aftur til Manchester United árið 2021.

„Hann er auðvitað frábær leikmaður og einn sá besti í sögunni. En staðreyndin er sú að hann hefur ekki getað skilað sínu síðustu sjö eða átta árin. Frá því hann var hjá Juventus var þetta í raun búið,“ sagði Ten Hag.

Morgan ræddi við Ronaldo um ummælin og greindi frá viðbrögðum Portúgalans í þættinum Football Uncensored.

„Ég spurði Cristiano út í þetta og hann sagði að Ten Hag væri ekki þess virði að ræða,“ sagði Morgan.

Morgan gagnrýndi jafnframt Ten Hag harðlega og taldi að Ronaldo hefði getað skorað fjölda marka til viðbótar fyrir United.

„Hann skoraði 18 mörk í úrvalsdeildinni og sex í Meistaradeildinni á sínu síðasta heila tímabili. Hvað myndi United ekki gefa fyrir slíkan framherja núna?“

Ronaldo yfirgaf United eftir opinberar deilur við Ten Hag árið 2022.

Hinn 41 árs gamli Portúgali leikur nú með Al-Nassr í Sádi-Arabíu og hefur skorað 132 mörk í 154 leikjum fyrir félagið.

Hann stefnir ótrauður að því að ná þúsund mörkum á ferlinum.