433

Jóhann Berg opnar sig um það hvernig hann og fjölskylda hans flúðu stríðsástand - „Þú getur ímyndað þér hversu hræddir krakkarnir voru“

Mynd
Jóhann Berg og Hólmfríður eiginkona hans.

Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, rifjaði upp erfiða daga þegar átök brutust út í Mið-Austurlöndum fyrr á þessu ári í hlaðvarpinu Sjöunni. Fjölskylda hans var þá stödd í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann sjálfur í Manchester á Englandi.

Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í lok febrúar og Íran svaraði með árásum á ríki á svæðinu, meðal annars Sameinuðu arabísku furstadæmin.

Jóhann Berg, sem lék með Al-Dhafra í furstadæmunum, sagði frá óttanum og erfiðleikunum við að komast aftur til fjölskyldunnar í Sjöunni.

„Ég var fastur í Manchester og fjölskyldan var í Abú Dabí. Þau heyrðu í þessum sprengjum og þú getur ímyndað þér hversu hræddir krakkarnir voru. Það var virkilega erfitt að vera ekki til staðar, tók mikið á.“

Jóhann fór að leita leiða til að komast aftur til fjölskyldunnar og hafði upphaflega hugsað sér að fljúga til Óman og keyra þaðan til Abú Dabí. Fyrir tilviljun rakst hann hins vegar á aðra leið.

„Svo labba ég framhjá Etihad Airways og spurði hvort þau væru að fljúga til baka. Þau sögðust vera að fara með lókalinn og fólk sem býr á svæðinu til baka en það var enginn túrismi eða neitt. Ég sýndi fram á dvalarleyfi og fékk flug til baka. Það voru svona 20 manns í þessari tveggja hæða flugvél.“

Þegar Jóhann var kominn aftur til fjölskyldunnar ákváðu þau fyrst um sinn að halda kyrru fyrir. Ástandið varð þó fljótt óþægilegt.

„Við fjölskyldan ákváðum að vera þarna áfram og sjá hvað myndi en svo koma pípin í símann þinn og þú heyrir hitt og þetta. Þá ferðu að hugsa: hvað erum við að gera hérna?“

Fjölskyldan ákvað að lokum að yfirgefa landið en það reyndist hægara sagt en gert. Þau þurftu að ferðast landleiðina til Óman og fljúga þaðan til Aþenu áður en þau komust heim til Íslands.

„Þetta tók virkilega á og var stressandi tími fyrir alla. Menn eru ekki vanir þessu og vissu ekki alveg hvert þetta var að stefna. Þá var best að koma sér út.“

Jóhann sagði þá skemmtilega sögu af ferðalaginu yfir landamærin. Fjölskyldan hafði fengið bílstjóra frá Óman til að sækja sig en sá var orðinn svo lúinn á leiðinni til baka að Jóhann þurfti sjálfur að taka við stýrinu.

„Konan á myndband af mér að keyra og kóngurinn sofandi í framsætinu, alveg búinn á því.“

Fjölskyldan sneri síðar aftur til Abú Dabí þar sem börnin kláruðu skólaárið, þrátt fyrir þá óvissu sem hafði ríkt.

„En þetta er auðvitað virkilega óþægilegt,“ sagði Jóhann Berg.

Hér ofar má hlusta og horfa á þessa frásögn Jóhanns.