Jesus Owono, markvörður Andorra sem lenti í samstuði sem leiddi til dauða Jesus de Miguel, leikmanns Tenerife, fyrr í vikunni er sagður algjörlega niðurbrotinn.
De Miguel lést í gær, aðeins þrítugur að aldri, eftir að hafa fengið þungt högg frá markverðinum undir lok leiksins. Owono hafði hlaupið langt út úr marki sínu til að hreinsa frá en lenti harkalega á framherjanum.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hágrét markvörðurinn og bað fyrir De Miguel í búningsklefanum eftir leikinn. Liðsfélagar reyndu að hugga hann og styðja við bakið á honum.
Owono er 25 ára gamall og landsliðsmarkvörður Miðbaugs-Gíneu. Hann hefur einnig lokað samfélagsmiðlum sínum vegna þess áreitis sem hann þurfti að glíma við á þeim eftir atvikið.
Spænsk yfirvöld rannsaka nú slysið en það þýðir ekki að markvörðurinn hafi gerst sekur um refsivert athæfi.