Jesús de Miguel, leikmaður spænska knattspyrnufélagsins Tenerife, er látinn eftir að hafa farið í hjartastopp í kjölfar harkalegs samstuðs í leik gegn Andorra á mánudagskvöld.
Tenerife staðfesti andlát hans í morgun, þriðjudaginn 3. nóvember.
Atvikið átti sér stað í uppbótartíma leiksins þegar de Miguel elti boltann en Jesús Owono, markvörður Andorra, kom út úr marki sínu á miklum hraða.
Owono stökk upp til að hreinsa boltann en lenti af miklu afli á efri hluta líkama de Miguel, sem féll strax til jarðar.
Læknalið veitti honum tafarlausa aðstoð eftir að hann fór í hjartastopp. Ástand hans var sagt stöðugt en alvarlegt á mánudagskvöld áður en það versnaði.
Owono fékk beint rautt spjald fyrir atvikið.
„Það eru engin huggunarorð til. Ekkert getur linað þessa sorg,“ segir í yfirlýsingu Tenerife.
Félagið sendir fjölskyldu hans, ástvinum og öllum tengdum félaginu innilegar samúðarkveðjur vegna þessa hræðilega harmleiks.