Nicky Butt, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur greint frá samtali sínu við Michael Carrick þar sem sá síðarnefndi viðurkenndi að hann hefði engan áhuga á að snúa aftur í þjálfun nema eitt ákveðið starf stæði til boða.
Carrick er nú undir gríðarlegri pressu hjá Manchester United eftir að liðið hefur leikið níu leiki í röð án sigurs.
Butt greindi upphaflega frá samtalinu í hlaðvarpinu Good, the Bad and the Football en útskýrði orð sín nánar í þættinum Piers Morgan Uncensored.
„Við vorum saman á padelmóti og fengum okkur bjór eftir á. Ég spurði Michael hvað hann ætlaði að gera varðandi þjálfun,“ sagði Butt.
„Hann sagði að þetta væri allt of mikið vesen og mikil vinna. En ef stóra starfið myndi losna myndi hann auðvitað taka það.“
Butt segir ljóst að Carrick hafi átt við stjórastarfið hjá Manchester United.
„Hann hafði engan áhuga á að keyra upp og niður M6-hraðbrautina allan daginn þegar hann á börn heima, án þess að það væri þess virði.“
Butt telur jafnframt ólíklegt að Carrick segi sjálfur upp störfum þrátt fyrir erfiða stöðu félagsins.
United tapaði nýlega 3-0 gegn Bournemouth og framtíð Carrick er sögð hanga á bláþræði.
Carrick hefur áður gert athugasemdir við frásögn Butt af samtalinu.