433

Arsenal setur þennan sóknarmann á lista - Vilja kaupa hann í janúar

Mynd
Getty Images

Arsenal hefur áhuga á að fá franska framherjann Eli Junior Kroupi frá Bournemouth þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Þetta kemur fram í frétt Mirror en þar segir að Lundúnafélagið fylgist grannt með hinum tvítuga sóknarmanni.

Arsenal er þó ekki eina stórliðið sem hefur áhuga á Kroupi því þýsku meistararnir Bayern München og franska stórliðið Paris Saint-Germain eru einnig sögð fylgjast með stöðu hans.

Samkeppnin um undirskrift Frakkans gæti því orðið hörð þegar félagaskiptaglugginn opnar um áramótin.

Kroupi er talinn spennandi kostur fyrir Arsenal sem vill styrkja sóknarlínu sína og bæta við fleiri möguleikum í fremstu víglínu.

Ekki kemur fram hvort Bournemouth sé tilbúið að selja framherjann í janúar eða hvaða verð félagið myndi setja á hann.