433

Ronaldo fékk frí - Ber á því að öryggi leikmanna sé ógnað í Sádí Arabíu

Mynd
Getty Images

Cristiano Ronaldo verður ekki með Al-Nassr þegar liðið mætir Pakhtakor í Meistaradeild Asíu í Úsbekistan.

Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Al-Nassr, ákvað að hvíla hinn 41 árs gamla Portúgala vegna mikils leikjaálags og ferðalaga. Kingsley Coman og Mohamed Simakan verða einnig fjarri góðu gamni.

Ákvörðunin kemur í kjölfar öryggisvandamála í Sádi-Arabíu, þar sem leik Al-Nassr gegn Neftchi var seinkað um tuttugu mínútur vegna öryggisviðvörunar.

Þá var leik gegn Al-Wasl frestað eftir að félagið frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum neitaði að ferðast til landsins af öryggisástæðum.

Ronaldo hefur verið í góðu formi og skoraði þrennu í 5-3 sigri gegn Al-Kholood á fimmtudag.

Hann hefur nú skorað 985 mörk á ferlinum og nálgast óðfluga þúsund marka múrinn.

Portúgalinn hefur skorað níu mörk í tólf leikjum fyrir Al-Nassr á tímabilinu.