Michael Carrick, stjóri Manchester United, segist hlakka mikið til leiksins gegn Roma í Meistaradeildinni í kvöld þrátt fyrir afar erfitt gengi undanfarið.
United hefur ekki unnið í níu leikjum í röð og er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Mikil pressa er á Carrick og hefur verið rætt um að félagið gæti látið hann fara í næsta landsleikjahléi.
„Ég get litið til framtíðar en maður veit aldrei hvað gerist. Ég hlakka virkilega til leiksins á morgun. Þið haldið kannski að ég sé klikkaður miðað við úrslitin hjá okkur en ég get ekki beðið eftir þessum leik,“ sagði Carrick á blaðamannafundi fyrir leik.
Carrick kom einnig leikmönnum sínum til varnar og sagðist ekki efast um vilja þeirra til að snúa gengi liðsins við.
Leikurinn fer fram á Old Trafford í kvöld.