433

Öðrum leikmönnum sé kastað undir rútuna með því að nafngreina ekki þá brotlegu

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Valtýr Björn Valtýsson og Kristin Kjærnested furða sig á því að landsliðsmenn Íslands sem gerðust sekir um agabrot í nýafstöðnum landsleikjaglugga séu ekki nafngreindir.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tjáði sig um málið, sem kom upp í síðustu viku, í viðtali við Vísi en vildi ekki nafngreina þá einstaklinga sem eiga að hafa haft áfengi um hönd milli þriðja og fjórða leiks í verkefninu.

„Af hverju eru þeir ekki nafngreindir? Fólkið sem er að borga sig inn á leiki dýrum dómi á að fá að vita þetta. Þetta er agabrot og mér finnst að landsliðsþjálfarinn eigi að koma fram af heilindum við fólkið í landinu. Af hverju erum við í einhverjum feluleik?“ segir Valtýr Björn í þættinum Mín Skoðun á X-inu og Fótbolti.net vakti athygli á því.

„Það má heldur ekki gleyma því þegar svona umræða fer í gang þá eru að ósekju blásaklausir dregnir inn í umræðuna og velt því fyrir sér hvort þetta sé þessi eða hinn,“ segir Kristinn meðal annars.