433

Lýsir helvíti eftir sambandsslit - „Upplifði líkamlegan sársauka“

Mynd

AnneKee Molenaar, fyrrverandi eiginkona Matthijs de Ligt, varnarmanns Manchester United, hefur tjáð sig um erfið sambandsslit þeirra í fyrra.

Parið hafði verið saman um árabil og giftist árið 2024, en skildi aðeins ári síðar. Það hefur verið fjallað um það að De Ligt hafi fengið nóg af andlegum leiðangri AnneKee, sem hefur meðal annars mikinn áhuga á kristöllum, tarotspilum og heilun.

Mynd

„Þetta hefur verið erfitt ár. Ég upplifði líkamlegan sársauka,“ segir AnneKee.

Hún segir þó ekkert sérstakt hafa komið upp á milli þeirra og að þau beri enn mikla ást hvort til annars. Þau hafi einfaldlega áttað sig á því að ástin eins og hún var væri ekki lengur til staðar.

De Ligt er nú sagður vera í sambandi með hollensku fyrirsætunni Amber Yuusef, en þau sáust saman á Ibiza í sumar.