433

Vinicius í langt bann - Missir af El Clasico

Mynd
Vinicius Junior Getty Images

Vinicius Junior, stjarna Real Madrid, hefur verið úrskurðaður í fjögurra leikja bann og missir því af stórleiknum gegn Barcelona síðar í þessum mánuði.

Brasilíumaðurinn fékk beint rautt spjald í 1-0 sigri Real Madrid gegn Villarreal um síðustu helgi eftir að hafa togað í hárið á Nathan Saliba. Atvikið fór fram hjá dómaranum í fyrstu en hann rak Vinicius af velli eftir að hafa skoðað myndbandsupptökur.

Vinicius fékk tveggja leikja bann fyrir brotið og aðra tvo leiki fyrir harkaleg mótmæli við dómarann eftir brottvísunina.

Hann missir því af leikjum gegn Sevilla, Barcelona, Racing Santander og Valencia í spænsku úrvalsdeildinni. Leikurinn gegn Barcelona fer fram 25. október.

Vinicius hefur beðist afsökunar á framkomu sinni. Þess má geta að bannið nær ekki til leikja í Meistaradeildinni.