433

Vilja að Wenger taki slaginn við Infantino

Mynd
Arsene Wenger. Mynd/Getty

Arsene Wenger, fyrrverandi stjóri Arsenal til margra ára, er nefndur sem mögulegur mótframbjóðandi Gianni Infantino í forsetakjöri FIFA á næsta ári í grein BBC.

Infantino hefur sætt harðri gagnrýni að undanförnu, meðal annars vegna misheppnaðra áforma um að selja einkafjárfestum hlut í mótum FIFA, þar á meðal heimsmeistaramótinu.

Samkvæmt BBC vilja áhrifamenn innan evrópskrar knattspyrnu að Wenger bjóði sig fram gegn Infantino. Frakkinn, sem er 76 ára, hefur starfað sem yfirmaður knattspyrnuþróunar hjá FIFA frá árinu 2019 og nýtur mikillar virðingar víða um heim.

Wenger hefur þó ekkert gefið út um mögulegt framboð og óvíst er hvort hann sé tilbúinn að bjóða sig fram gegn sínum eigin yfirmanni í dag, Infantino.

Frestur er til 18. nóvember til að tilkynna framboð.