433

Tíðindi af Kane

Mynd
Getty Images

Harry Kane hefur náð samkomulagi við Bayern Munchen um nýjan samning sem gildir til sumarsins 2029.

Hinn 33 ára gamli Kane gekk í raðir Bayern frá Tottenham sumarið 2023 og hefur verið stórkostlegur síðan. Hann hefur orðið markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar þrjú tímabil í röð.

Núverandi samningur Englendingsins rennur út næsta sumar en samkvæmt helstu miðlum hafa Kane og Bayern náð samkomulagi um framlengingu. Aðeins á eftir að ganga frá smáatriðum.

Kane hefur verið orðaður hingað og þangað vegna samningsstöðu sinnar en nú virðist óvissa með hans framtíð vera úr sögunni.