Lisandro Martinez, varnarmaður Manchester United, verður sektaður af félaginu eftir harða gagnrýni sína á forráðamenn þess í vikunni.
Argentínumaðurinn gagnrýndi yfirmenn og innkaupastefnuna hjá United í viðtali eftir 2-0 tap gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni á þriðjudag. Hann taldi félagið ekki hafa styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.
Martinez fundaði með Jason Wilcox, yfirmanni knattspyrnumála, og Michael Carrick, knattspyrnustjóra, í gær og baðst í kjölfarið afsökunar á ummælum sínum í yfirlýsingu.
„Vonbrigðin eftir tapið urðu til þess að ég tjáði tilfinningar mínar á stað og stund sem hentuðu kannski ekki. Ég vil biðjast afsökunar á því,“ skrifaði Martinez.
BBC segir að Martinez fái sekt en að félagið telji málinu nú lokið. Kappinn ætti því að geta spilað gegn Leeds um helgina.