Kólumbíska knattspyrnugoðsögnin Carlos Valderrama hefur sagt skilið við sitt fræga krullaða hár, en hann sýndi frá því er það var rakað af.
„Jæja, gott fólk, dagurinn er runninn upp,“ sagði Valderrama áður en raksturinn hófst. Elvira, eiginkona hans, grínaðist með að nú yrði hann kallaður „sköllótti Valderrama“ en kappinn var sjálfur ánægður með útkomuna.
Mynd
Getty Images
Nýja útlitið hefur vakið mikla athygli og héldu sumir stuðningsmenn að myndbandið væri búið til með gervigreind. Rene Higuita, fyrrverandi landsliðsfélagi hans, var meðal þeirra sem hrósuðu nýja útlitinu.
Valderrama lék á þremur heimsmeistaramótum með Kólumbíu, árin 1990, 1994 og 1998, og var hárið eitt helsta einkennismerki hans allan ferilinn.
Mynd