433

Nýr kærasti Shakiru vekur athygli - Þetta er maðurinn

Mynd
Shakira - Mynd/EPA

Kólumbíska söngkonan Shakira er sögð vera að slá sér upp með Serge Ibaka, fyrrverandi körfuboltamanni Real Madrid og NBA-meistara með Toronto Raptors.

Fjölmiðlar á Spáni hafa fjallað mikið um meint samband þeirra síðustu daga. Ibaka, sem er 37 ára, hefur sést á nokkrum tónleikum Shakiru í Madríd og eru þau einnig sögð hafa ferðast saman til Parísar.

Mynd
Serge Ibaka. Getty Images

Shakira var áður í sambandi með Gerard Pique, fyrrverandi varnarmanni Barcelona í knattspyrnu, en þau skildu árið 2022 eftir ellefu ára samband. Var skilnaðurinn fremur stormasamur. Þau eiga tvo syni saman.

Í ljósi þess vekur athygli að Shakira sé nú að hitta fyrrverandi leikmann Real Madrid, þó sá hafi spilað körfubolta.