Lisandro Martinez, varnarmaður Manchester United, hefur tjáð sig á ný eftir að hafa gagnrýnt forráðamenn félagsins harðlega í kjölfar 2-0 taps gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Martinez gagnrýndi félagið fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar. Ummælin vöktu mikla athygli og er nokkrir samherjar hans sagðir ósáttir með þau.
Argentínumaðurinn birti í gær yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann útskýrði ummæli sín en baðst ekki afsökunar.
„Ég var reiður því við náðum ekki í þau úrslit sem við vildum. Orð mín endurspegla hversu mikið ég vil sjá þetta félag berjast um stærstu titlana,“ skrifaði Martinez.
Hann lagði jafnframt áherslu á að leikmennirnir bæru sjálfir ábyrgð á frammistöðunni og sagðist hafa fulla trú á samherjum sínum, Michael Carrick og öðrum starfsmönnum félagsins.
Samkvæmt Sky Sports var Martinez tekinn á beinið af samherja sínum í fluginu heim frá Madríd. Framtíð hans hjá United er óljós en samningur hans rennur út næsta sumar.