433

Liverpool á eftir spennandi leikmanni

Mynd
Getty Images

Liverpool hefur mikinn áhuga á Alberto Moleiro, sóknarmanni Villarreal, og gæti reynt að kaupa hann í janúar.

Hinn 23 ára gamli Moleiro hefur staðið sig vel með Villarreal frá því hann kom frá Las Palmas sumarið 2025. Hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú í átta leikjum á tímabilinu.

Samkvæmt spænskum miðlum er Andoni Iraola, stjóri Liverpool, aðdáandi leikmannsins, sem gæti kostað allt að 50 milljónum punda.

Moleiro getur spilað á köntunum og fremst á miðjunni. Talið er að fleiri félög fylgist einnig með kappanum, sem er samningsbundinn Villarreal til 2030.