433

Er til í að taka við United

Mynd
Antonio Conte GettyImages

Antonio Conte er sagður opinn fyrir því að taka við Manchester United ef félagið ákveður að reka Michael Carrick. Talksport segir frá þessu.

Carrick er undir mikilli pressu eftir slaka byrjun á tímabilinu. United hefur aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og situr í 13. sæti.

Conte, sem er 57 ára, er án félags eftir að hafa yfirgefið Napoli í sumar. Hann hefur áður stýrt Chelsea og Tottenham á Englandi og gerði fyrrnefnda liðið að Englandsmeisturum árið 2017.

Forráðamenn United eru þó ekki sagðir íhuga að reka Carrick að svo stöddu. Conte er hins vegar klár í samtal ef kallið kemur.

Mikið fjaðrafok hefur verið í kringum United síðustu daga í kjölfar viðtals þar sem Lisandro Martinez, leikmaður liðsins, lét mennina á bak við tjöldin heyra það fyrir að styrkja leikmannahópinn ekki nægilega vel í sumar.