433

Breyta reglunum í kjölfar afskipta Trump

Mynd
Getty Images

Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hyggst breyta reglum sínum í kjölfar umdeildrar ákvörðunar um að fella úr gildi leikbann Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á HM í sumar.

Balogun fékk rautt spjald í leik Bandaríkjanna gegn Bosníu og Hersegóvínu en FIFA ákvað síðar að fresta framkvæmd leikbannsins. Hann gat því leikið næsta leik Bandaríkjanna á mótinu.

Ákvörðunin vakti mikla athygli, ekki síst eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði óskað eftir því að FIFA endurskoðaði málið. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, gagnrýndi ákvörðunina harðlega og taldi FIFA hafa farið yfir strikið.

ESPN greinir nú frá því að FIFA ætli að breyta regluverkinu til að koma í veg fyrir að sambærileg staða komi upp aftur.