„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir mig persónulega,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari við Vísi um agabrot landsliðsmanna Íslands á dögunum.
Nokkrir leikmenn gerðust sekir um brotið á milli þriðja leiks í síðasta landsleikjaglugga gegn Búlgaríu hér heima og fjórða leiksins við Eistland ytra.
„Mikil vonbrigði að þetta skuli hafa gerst á þessum tíma. Glugginn hafði gengið vel. Við vorum að fara í lokaleikinn á móti Eistum. Mikil vonbrigði fyrir viðkomandi leikmenn að hafa ekki bara brugðist sjálfum sér, heldur líka brugðist mér, brugðist liðsfélögunum og þjóðinni líka.“
Arnar segir málið hafa sett skugga á landsleikjagluggann. Leikurinn við Eistland var dapur og endaði með markalausu jafntefli.
„Undirbúningurinn fór til fjandans. Að sama skapi voru ákveðnir þættir í leikskipulagi sem þurfti að breyta og laga til. Vonbrigði eru stærsta og mikilvægasta orðið í þessu.“