John Sitton, fyrrverandi leikmaður Millwall og Chelsea, rifjaði á dögunum upp óhugnanlegt atvik þegar stuðningsmaður Millwall ógnaði honum með hnífi skömmu eftir komu hans til félagsins.
Sitton gekk til liðs við Millwall frá Chelsea árið 1980, þá tvítugur að aldri. Félagaskiptin fóru illa í suma stuðningsmenn Millwall vegna mikillar óvildar í garð Chelsea.
Í samtali við Daily Star segir Sitton að hann hafi verið á krá eftir 3-1 sigur gegn Brentford þegar stuðningsmaður kom að honum og lét hann heyra það fyrir að hafa leikið með Chelsea.
„Hann sagði að við værum ekki velkomnir þarna og dró svo upp hníf,“ segir Sitton, en aðrir viðstaddir skárust í leikinn og skildu mennina að.
Það ótrúlega var að sami stuðningsmaður hringdi í Sitton klukkan 8:15 morguninn eftir og baðst afsökunar. „Fyrirgefðu, þú ert einn af okkur núna,“ sagði hann.
Sitton segir þrátt fyrir þetta að stutt dvölin hjá Millwall hafi verið frábær og að hann hafi myndað náin tengsl við stuðningsmenn félagsins.