433

Greint frá stórtíðindum af Netflix

Mynd

Netflix hefur tryggt sér sýningarréttinn á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu árið 2030 á Spáni og í Andorra. Þetta er í fyrsta sinn sem streymisveitan mun sýna frá HM karla.

Netflix mun sýna alla 104 leiki mótsins í löndunum tveimur og einn leikur á hverjum leikdegi verður þá aðgengilegur án endurgjalds á Spáni.

Þá verða allir leikir spænska landsliðsins, undanúrslitaleikirnir tveir og úrslitaleikurinn sýndir í opinni dagskrá þar í landi.

Þetta er stórt skref sem Netflix er að stíga og er því velt upp hvort fleiri lönd muni fylgja í kjölfarið.

HM 2030 fer að mestu fram á Spáni, í Portúgal og Marokkó en einnig verða leikir í Úrúgvæ, Paragvæ og Argentínu í tilefni af 100 ára afmæli heimsmeistaramótsins.