433

Auddi Blö segir frá breytingum - „Þetta er bara það dapurt“

Mynd

Fossinn, sem Auðunn Blöndal opnaði ásamt eiginkonu sinni fyrr á árinu, hefur slegið í gegn, en þar er meðal annars sýnt frá stórum íþróttaviðburðum.

Auðunn, gjarnan kallaður Auddi, er mikill stuðningsmaður Manchester United eins og flestir vita og sýnir alla leiki liðsins á staðnum, sem og leiki Liverpool og aðra stóra leiki. Það hefur hins vegar ekki gengið vel hjá hans mönnum það sem af er leiktíð.

United er aðeins með sex stig eftir jafnmarga leiki í ensku úrvalsdeildinni og í gær tapaði liðið 2-0 gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni. Auddi hefur boðið upp á tilboð á barnum þegar Rauðu djöflarnir eru yfir í leikjum en gerði breytingu á því í gær.

„United-Atletico Madrid er sýndur á Fossinum í kvöld. Það er smá breyting á, þetta er bara það dapurt, að Carlsberg er á 950 krónur á meðan United er ekki undir. Við erum hættir að bíða eftir að þeir komist yfir,“ sagði hann á Instagram. 

Góð tilraun Audda til að halda verðinu niðri dugði þó ekki einu sinni í eina mínútu, en þá hafði Atletico komist yfir.

„Það er gaman að segja frá því að þetta tilboð var í 53 sekúndur, áður en Atletico Madrid skoraði,“ sagði hann kaldhæðinn.