Galatasaray hefur áhuga á að fá Virgil van Dijk, fyrirliða Liverpool, til félagsins og gæti fengið Ilkay Gundogan til að hjálpa sér að sannfæra Hollendinginn.
Van Dijk er 35 ára gamall og rennur samningur hans við Liverpool út næsta sumar. Ekki hefur verið ákveðið hvort félagið ætli að bjóða honum nýjan samning.
Samkvæmt tyrkneskum miðlum gæti Gundogan hjálpað Galatasaray að fá Van Dijk, en þeir eru hjá sömu umboðsskrifstofu. Frændi Gundogan starfar einnig á stofunni.
Van Dijk er sagður hafa hrifist af stemningunni á heimavelli Galatasaray þegar hann lék þar með Liverpool.