Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í umspili um sæti á HM á morgun. Veðbankar eru hliðhollir Stelpunum okkar.
Meira
Svona er leið Íslands á HM í fyrsta sinn - Líklegt að örlögin ráðist á Laugardalsvelli í desember
Ísland heimsækir Króatíu í fyrri leik liðanna ytra klukkan 16:45 á morgun. Seinni leikurinn fer svo fram á þriðjudag hér heima. Sigur í þessu einvígi tryggir úrslitaeinvígi við Portúgal eða Norður-Írland um sæti á HM í Brasilíu næstu sumar.
Ísland þykir mun sigurstranglegri aðilinn gegn Króatíu. Stuðull á sigur liðsins á útivelli í fyrri leiknum er 1,08. Hann er 12,05 á heimaliðið og 7,45 á jafntefli.