Cristiano Ronaldo hefur skotið föstum skotum á Simon Jordan, fyrrverandi stjórnarformann Crystal Palace og nú sparkspeking, eftir að sá síðarnefndi gagnrýndi Portúgalann harðlega.
Jordan hefur verið gagnrýninn á hegðun Ronaldo eftir að hann yfirgaf landsliðshóp Portúgals vegna deilna við Jorge Jesus landsliðsþjálfara.
Breski sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan ver Ronaldo með kjafti og klóm og lenti í hörðum orðaskiptum við Jordan í útvarpsþætti á Talksport. Morgan sendi Ronaldo myndband af orðaskiptunum og fékk heldur óvænt svar.
„Þessi ljóshærði maður, segðu honum að hætta að sprauta sig með bótox. Hann lítur út eins og epli,“ sagði Ronaldo samkvæmt Morgan, sem las skilaboðin upp í þætti sínum.
Ronaldo yfirgaf portúgalska hópinn í kjölfar þess að vera ónotaður varamaður í útileik gegn Noregi. Vill hann meina að Jesus hafi beðið hann um að ferðast með í leikinn til að spila hálftíma, en ekki staðið við það. Hann hafi svo lofað að útskýra málið á blaðamannafundi en látið Ronaldo líta enn verr út þar.
Hinn 41 árs gamli Ronaldo útilokar ekki að snúa aftur í landsliðið en ku ekki vilja gera það á meðan Jesus, sem tók við í sumar, er þjálfari.