433

Sjáðu ótrúlega 3,5 milljarða eign sem stórstjarna hefur sett á sölu í New York

Mynd

Knattspyrnugoðsögnin Thierry Henry hefur sett glæsilega þakíbúð sína í New York á sölu rúmlega þrjá milljarða íslenskra króna.

Henry, sem er 49 ára, keypti eignina ásamt eiginkonu sinni, Andrea Rajacic, árið 2010 fyrir nær helmingi lægri upphæð. Það var skömmu áður en hann gekk til liðs við New York Red Bulls frá Barcelona.

Íbúðin er í Soho-hverfinu á Manhattan og er um 557 fermetrar að stærð. Þar er meðal annars stór einkagarður á þakinu með grillaðstöðu og glæsilegu útsýni yfir borgina.

Þau hafa áður sett íbúðina á sölu en hætt við. Henry segir að þau séu enn ástfangin af íbúðinni og að það hafi verið mjög erfitt að yfirgefa New York.

Hér að neðan má sjá myndir af íbúðinni.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd