433

Ræða nýjan samning við Bruno Fernandes - Þetta er helsta hindrunin

Mynd
Bruno Fernandes - Youri Tielemans Getty Images

Manchester United vill gera nýjan samning við Bruno Fernandes en viðræður hafa ekki skilað árangri enn sem komið er. Helsti ásteytingarsteinninn er lengd samningsins.

Samningur fyrirliðans rennur út næsta sumar og er möguleiki á að framlengja hann um eitt ár til viðbótar. United vill hins vegar ekki gera of langan samning við launaháan leikmann sem er orðinn 33 ára og er talið að samningur til ársins 2029 sé í pípunum.

Kæmi þá til greina að hafa klásúlu í þeim samningi um að hann framlengist sjálfkrafa um ár til viðbótar ef Fernandes er enn í stóru hlutverki hjá United og nær ákveðnum fjölda leikja.

Portúgalinn hefur verið orðaður við önnur félög undanfarin ár en United vill alls ekki missa hann strax.