433

Óttast pólitísk áhrif í máli Manchester City

Mynd
Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands. Mynd/Getty

Forráðamenn nokkurra félaga í ensku úrvalsdeildinni óttast hugsanleg pólitísk áhrif á áfrýjunarferlið í máli Manchester City eftir ummæli Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands.

BBC greinir frá þessu en Burnham sagðist hafa miklar áhyggjur af því ef eigendur City frá Abu Dhabi myndu selja félagið í kjölfar þess að það var fundið sekt um umfangsmikil brot á fjárhagsreglum úrvalsdeildarinnar.

Burnham, sem var borgarstjóri Manchester í níu ár áður en hann varð forsætisráðherra, hrósaði eigendunum fyrir fjárfestingar þeirra í borginni. Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð innan úrvalsdeildarinnar.

Heimildarmaður BBC hjá einu félaganna segir ummælin í besta falli barnaleg og í versta falli tilraun til að hafa áhrif á málið. Aðrir hafa lýst áhyggjum af hugsanlegum pólitískum þrýstingi vegna efnahagslegra og diplómatískra tengsla Bretlands við Sameinuðu arabísku furstadæmin.

Skrifstofa forsætisráðherrans hefur áréttað að enginn sé hafinn yfir reglurnar og að sjálfstætt dómsferli verði að fá að klárast án afskipta.

Manchester City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum en félagið neitar sök og hefur áfrýjað niðurstöðunni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða refsingu félagið fær.