Fabio Paim, fyrrverandi leikmaður Chelsea, var á sínum tíma talinn meira efni en Cristiano Ronaldo á knattspyrnuvellinum en ferill hans tók allt aðra stefnu. Hann endaði í fangelsi og sneri sér síðar að klámmyndaleik.
Paim og Ronaldo voru saman í unglingastarfi Sporting í Portúgal og þótti Paim gríðarlegt efni. Ronaldo sagði meira að segja þegar hann gekk til liðs við Manchester United árið 2003: „Ef ykkur finnst ég góður, bíðið þar til þið sjáið Fabio Paim.“
Paim var lánaður til Chelsea árið 2008 en lék aldrei með aðalliði félagsins. Hann flakkaði síðan á milli félaga án þess að ná þeim hæðum sem honum hafði verið spáð.
Árið 2019 var Paim handtekinn vegna gruns um fíkniefnasmygl og sat um tíma í gæsluvarðhaldi. Hann var síðar sýknaður.
Paim, sem er nú 38 ára, hóf feril í klámmyndaiðnaðinum árið 2024 og lék þá í sinni fyrstu klámmynd. Hann sagðist hafa látið gamlan draum rætast og taldi sig einnig hafa hæfileika á því sviði.