Southampton hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir viðbrögð sín eftir að Tonda Eckert, stjóri liðsins, slapp í raun við leikbann vegna njósnamálsins sem skók félagið á síðustu leiktíð.
Eckert fékk sex vikna bann, en það er skilorðsbundið út næstu leiktíð. Hann getur því haldið áfram störfum, en þarf að greiða 28 þúsund punda sekt.
Southampton var á síðustu leiktíð staðið að því að njósna um æfingar Middlesbrough, Oxford United og Ipswich. Liðinu var í kjölfarið vísað úr umspilinu um sæti í ensku úrvalsdeildinni og það hóf þessa leiktíð með fjögur stig í mínus.
Eftir úrskurðinn birti Southampton myndband af Eckert fagna fyrir framan stuðningsmenn með ögrandi skilaboðum, en færslan var síðar fjarlægð.
Félagið gerði einnig grín að stuðningsmönnum Middlesbrough á samfélagsmiðlum og hefur verið gagnrýnt fyrir framkomuna.