433

Er nálægt því að skrifa undir - Fær svipuð laun og launahæsti liðsfélaginn

Mynd
Getty Images

Declan Rice er nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning við Arsenal. Frá þessu greinir BBC, sem og fleiri miðlar.

Rice, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við Arsenal frá West Ham sumarið 2023 fyrir 105 milljónir punda og hefur síðan verið einn allra besti leikmaður liðsins og ensku úrvalsdeildarinnar. Hann átti stóran þátt í því að Arsenal varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð, í fyrsta sinn í 22 ár.

Núverandi samningur Rice rennur út þarnæsta sumar en viðræður um framlengingu eru langt komnar. Hann er sagður fá verulega launahækkun og gæti farið úr 240 þúsund pundum á viku í um 350 þúsund, svipað og Bukayo Saka fær.

Fréttirnar koma skömmu eftir að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við félagið.