Framtíð hins afar efnilega Lennart Karl hjá Bayern Munchen er í óvissu og Arsenal fylgist með gangi mála.
Karl, sem er aðeins 18 ára gamall, hefur vakið mikla athygli með Bayern en ku hann vilja fá fleiri mínútur inni á vellinum. Þýski blaðamaðurinn Christian Falk segir viðræður um nýjan samning ekki hafnar, en hann á þó um tvö og hálft ár eftir af núgildandi samningi.
Talið er að framtíð Karl tengist líka framtíð Michael Olise, lykilmanns Bayern. Mikill áhugi er á þeim frábæra leikmanni en þýska stórliðið vonast til að hann framlengi.
Fari svo sér Karl ekki leið inn í byrjunarliðið neitt á næstunni og gæti farið að horfa í kringum sig. Auk Arsenal ku Real Madrid hafa sýnt leikmanninum unga áhuga.