433

Býður sig fram gegn Infantino - „Knattspyrnan er á gjörgæslu og í öndunarvél“

Mynd
Getty Images

Ramon Vega, fyrrverandi leikmaður Tottenham, hefur tilkynnt að hann ætli að bjóða sig fram gegn Gianni Infantino í forsetakosningum FIFA á næsta ári.

Vega er 55 ára gamall Svisslendingur sem lék einnig með Celtic og Watford á ferlinum. Hann hefur starfað í fjármálageiranum frá því hann lagði skóna á hilluna árið 2004.

Infantino hefur sætt harðri gagnrýni að undanförnu vegna misheppnaðra áforma um að selja einkafjárfestum hlutdeild í keppnum FIFA. Knattspyrnusambönd Evrópu, Asíu og Norður- og Mið-Ameríku hafa kallað eftir afsögn hans en hann gefur kost á sér áfram.

„Knattspyrnan er á gjörgæslu og í öndunarvél. Við getum ekki beðið lengur. FIFA þarf nýja stefnu og grundvallarbreytingar,“ segir Vega, sem vill endurheimta traust á sambandinu.

Vega hugðist einnig bjóða sig fram gegn Infantino árið 2019 en náði þá ekki nægum stuðningi til að komast á kjörseðil. Frambjóðendur þurfa stuðning að minnsta kosti fimm aðildarsambanda FIFA.